Heimild: Daily Mail
Rudi Garcia, stjóri Roma, hefur útilokað að selja miðjumanninn Kevin Strootman til Manchester United.
Strootman hefur verið sterklega orðaður við United allt frá því hann gekk í raðir Roma fyrir ári síðan.
Garcia segir það ekki koma til greina að selja Strootman, nema þá að tilboð upp á 100 milljónir evra berist í þennan öfluga Hollending.

,,Hvað get ég sagt um þessa orðróma. Kannski, ef það tilboðið nær þriggja stafa tölu, þá munum við setjast niður og hugsa um það," grínaðist Garcia með.
Strootman er þessa stundina á fullu í endurhæfingu eftir að hafa orðið fyrir slæmum meiðslum á síðustu leiktíð. Missti hann meðal annars af HM vegna þeirra.
Athugasemdir