Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 28. júlí 2014 09:00
Daníel Freyr Jónsson
Samherji Emils á leið til Juventus
Romulo fer til Juventus.
Romulo fer til Juventus.
Mynd: Getty Images
Ítölsku meistararnir Juventus er við það að klófesta miðjumanninn Romulo frá Verona.

Þessi 27 ára gamli Brasilíumaður var fastamaður í liði Verona sem kom öllum á óvart sem nýliði í Serie A á síðustu leiktíð.

Lék hann á miðjunni í fjölmörgum leikjum ásamt landsliðsmanninum Emil Hallfreðssyni, en Romulo getur einnig leyst stöðu bakvarðar.

Forráðamenn Verona hafa staðfest við ítalska fjölmiðla að samningar séu nánast í höfn og að einungis ætti að ganga frá nokkrum smáatriðum.
Athugasemdir
banner
banner
banner