Arsene Wenger, stjóri Arsenal, viðurkennir að það sé áhætta fyrir félagið að kaupa bakvörðinn Calum Chambers til Arsenal.
Hinn 19 ára gamli Chambers er á leið til Arsenal á 16 milljónir punda en hann var 18 sinnum í byrjunarliðinu á síðasta tímabili.
,,Hann hefur ekki spilað marga leiki, nei, en ensku leikmennirnir á enska markaðinum eru mjög dýrir og ég var tilbúinn að taka þessa áhættu því að hann er leikmaður fyrir framtíðina," sagði Wenger.

,,Hann getur spilað í miðverði, hægri bakverði og á miðjunni. Ég vona að hann muni veita leikmönnum samkeppni í þessari stöðu."
Athugasemdir