Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 28. júlí 2015 21:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
2. deild: Huginn á toppinn eftir sigur á Hetti
Huginn vann Hött
Huginn vann Hött
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Höttur 0-2 Huginn
0-1 Rúnar Freyr Þórhallsson ('27)
0-2 Alvaro Montejo Calleja ('35)
Rautt spjald: Aron Gauti Magnússon, Höttur ('54)

Huginn frá Seyðisfirði vann góðan 0-2 útisigur á Hetti í eina leik kvöldsins í 2. deild karla.

Rúnar Freyr Þórhallson kom gestunum yfir um miðjan fyrri hálfleik og Alavaro Montejo Calleja náði að bæta við marki stuttu síðar.

Aron Gauti Magnússon, leikmaður Hattar, var rekinn af velli snemma í seinni hálfleik en ekkert var þó meira skorað og 0-2 sigur Hugins því staðreynd.

Huginn fór toppinn með sigrinum en liðið er nú með 32 stig og á meðan er Höttur með 16 stig í sjötta sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner