Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 28. júlí 2015 18:00
Magnús Már Einarsson
Adebayor á leið til Aston Villa
Mynd: Getty Images
Emmanuel Adebayor, framherji Tottenham, er á leið til Aston Villa samkvæmt frétt Sky Sports.

Adebayor var mættur á æfingasvæði Aston Villa í dag til að skoða aðstæður.

Tim Sherwood, stjóri Aston Villa, þekkir Adebayor síðan hann stýrði Tottenham á þarsíðasta tímabili.

Sherwood er í leit að liðsstyrk í fremstu víglínu eftir að Christian Benteke fór til Liverpool.

Adebayor var lítið með Tottenham á síðasta tímabili en hann kom einungis við sögu í þremur leikjum.
Athugasemdir
banner
banner