Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði þrennu þegar Fylkir sigraði Val 5-1 í Pepsi-deildinni í kvöld.
Berglind var að spila sinn síðasta leik með Fylki í sumar en hún er á leið til Bandaríkjanna í skóla. Berglind hefur skorað mikið að undanförnu og Fylki hefur vegnað vel. Hún segir erfitt að þurfa að kveðja á þessum tímapunkti.

Lestu um leikinn: Fylkir 5 - 1 Valur
„Það er mjög erfitt. Ég vil helst ekki fara en svona er þetta," sagði Berglind við Fótbolta.net eftir leik.
Berglind er úr Vestmananeyjum en hún mun þó ekki mæta á Þjóðhátíð um næstu helgi.
„Ég ætla ekki á Þjóðhátíð í ár. Ég fer út á sunnudagsmorgun. Það verður róleg helgi hjá mér og svo fer ég út í veisluna," sagði Berglind.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir