„Við náðum ekki að skora í dag og vorum kannski ekki að skapa okkur nægilega góð færi," sagði Björn Karl þjálfari KR eftir 3-0 tap liðsins gegn Breiðablik í Pepsi-deild kvenna í kvöld.
Lestu um leikinn: KR 0 - 3 Breiðablik
„Við voru að reyna en vorum undir í barátunni. Breiðablik er með gott lið og það var erfitt að eiga við þær í dag."
„Vð erum að reyna, bæði að reyna spila og reyna koma okkur í góða stöðu. Ég tek það sem jákvæðum hlut."
„Það var alltaf vitað að þetta yrði ströggl en nú ætlum við að snúa blaðinu við," sagði Björvin Karl sem var ánægður með dómgæsluna í leiknum í kvöld.
Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir