Heimild: Goal
Laurent Blanc, stjóri PSG, hefur staðfest það að félagið sé að nálgast kaupin á Angel Di Maria, leikmanni Manchester United.
Di Maria hefur verið sterklega orðaður við PSG í allt sumar og virðist núna vera á leið til franska stórliðsins.
Di Maria hefur verið sterklega orðaður við PSG í allt sumar og virðist núna vera á leið til franska stórliðsins.
"Varðandi kaupin á Angel Di Maria, þá er þeim nálægt því að vera lokið," sagði Blanc við fjölmiðla.
"Ég er nokkuð bjartsýnn fyrir framhaldinu."
Di Maria kom til Manchester United frá Real Madrid á 59,7 milljónir punda í fyrrasumar.
Athugasemdir