Það lá vel á Hörpu Þorsteinsdóttur leikmanni Stjörnunnar eftir sigur gegn Selfossi í kvöld. Harpa skoraði tvö mörk í leiknum og var valin maður leiksins.
„Bara liðsheild og gríðarlegur karakter í Stjörnuliðinu sagði Harpa aðspurð því hvað skilaði sigri í kvöld," sagði Harpa eftir leikinn.
„Mér fannst við byrja leikinn mjög vel. Fyrstu 10 mínúturnar settum við þær í bölvuð vandræði. Síðan komast þær inní leikinn og setja á okkur mark. Mér fannst við gera vel í að koma til baka og jafna fyrir hálfleik, það var gríðarlega mikilvægt. "
Harpa skoraði tvö mörk í kvöld en bæði komu eftir slæm mistök í vörn Selfyssinga.
„Ég á að skora þannig að það er ágætt þegar það gerist. Þetta er gríðarlega sterkt lið og þessi leikur réðst bara á mistökum. Þegar svona sterk lið mætast fara úrslitin stundum eftir því hvaða lið gerir fleiri mistök og sem betur fer voru það ekki við í dag."
Stjarnan og Selfoss mætast í úrslitaleik Borgunarbikarsins í lok ágúst og er Harpa spennt fyrir leiknum. Hún setur mikla pressu á Selfyssinga að fjölmenna á leikinn.
Athugasemdir