Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   þri 28. júlí 2015 21:03
Alexander Freyr Tamimi
Ian Jeffs: Leikmennirnir gera fáránleg mistök
Ian Jeffs.
Ian Jeffs.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ian Jeffs, þjálfari kvennaliðs ÍBV, var ekkert allt of sáttur með sínar stelpur þrátt fyrir 3-2 sigur gegn Þrótti í Pepsi deild kvenna í kvöld.

ÍBV komst í 3-0 en gaf eftir og fékk á sig tvö mörk. Var Ian ekki ánægður með seinni hálfleikinn.

„Ég var bara mjög ánægður með fyrri hálfleikinn, mér fannst við spila hann mjög vel og það leit út eins og við myndum skora fleiri mörk. Seinni hálfleikurinn byrjaði ágætlega fyrstu 10-15 en mér fannst eins og oft áður í sumar, um leið og það kom smá mótlæti, þá fannst mér við allt of fljót að brotna niður. Það gerðist aftur í dag," sagði Ian við Fótbolta.net eftir leikinn.

„Ég var alls ekki ánægður með síðustu 20-25 mínúturnar. Þróttur komu mjög sterkar inn, skora eitt mark og svo kemur víti. Mér fannst þetta alltaf koma út af okkar mistökum, þær voru ekki að skapa neitt en það voru alltaf okkar leikmenn sem voru að gera fáránleg mistök, sem er óskiljanlegt."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner