Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 28. júlí 2015 17:00
Magnús Már Einarsson
Jose Angel Crespo til Aston Villa (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Aston Villa hefur keypt varnarmanninn Jose Angel Crespo frá Cordoba á Spáni.

Hinn 28 ára gamli Crespo krotaði undir þriggja ára samning á Villa Park.

Crespo spilaði 29 leiki með Cordoba þegar liðið féll úr La Liga á síðasta tímabili.

Aston Villa hefur í sumar einnig krækt í Mark Bunn, Scott Sinclair, Jordan Ayew og Idrissa Gueye.

Lykilmennirnir Christian Benteke og Fabian Delph eru aftur á móti búnir að róa á önnur mið.
Athugasemdir
banner
banner
banner