Heimild: Sky Sports
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hrósar Eden Hazard og segir hann jafnvel betri Cristiano Ronaldo, leikmann Real Madrid.
Mourinho var spurður á blaðamannafundi hvort að Hazard væri betri en Ronaldo, en Mourinho þjálfaði Ronaldo hjá Real Madrid á sínum tíma.
Mourinho var spurður á blaðamannafundi hvort að Hazard væri betri en Ronaldo, en Mourinho þjálfaði Ronaldo hjá Real Madrid á sínum tíma.
"Á síðasta tímabili, já. Þrátt fyrir að Ronaldo hafi verið stórkostlegur og skorað mikið af mörkum," sagði Mourinho.
"Ég er ekki að segja það að Ronaldo hafi ekki verið frábær. Það er bara það að mínu mati verður hver einasti fótboltamaður í heiminum að skilja það að liðið kemur á undan einstaklingnum."
Hazard var Englandsmeistari með Chelsea og auk þess sem hann skoraði 20 mörk í öllum keppnum.
Athugasemdir