Ögmundur Kristinsson var valinn maður leiksins hjá Hammarby í 1-0 tapi gegn Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni í gær.
Ögmundur var að leika sinn fyrsta heimaleik með Hammarby síðan hann kom til félagsins frá Randers á dögunum.
Ögmundur átti góðan leik í gær og varði nokkrum sinnum vel.
Það dugði þó ekki til því Arnór Ingvi Traustason og félagar í Norrköping fóru með sigur af hólmi.
Birkir Már Sævarsson lék einnig allan leikinn með Hammarby í gær.
Athugasemdir