„Þetta var sanngjarn sigur," sagði Þorsteinn Halldórsson þjálfari Breiðabliks eftir 3-0 sigur liðsins á KR í Pepsi-deild kvenna í kvöld.
Lestu um leikinn: KR 0 - 3 Breiðablik
KR-ingar töldu að brotið hefði verið á Sigríði Maríu Sigurðardóttir í fyrsta marki Blika. Sigurður Helgason, stuðningsmaður KR, var meðal annars ekki sáttur. „Siggi Helga er alltaf brjálaður," sagði Þorsteinn léttur í bragði.
Blikar halda áfram fjögurra stiga forskoti á toppi deildarinnar og færast alltaf nær og nær Íslandsmeistaratitlinum.
„Möguleikarnir eru góðir en við verðum að halda áfram. Næsta verkefni er það sem skiptir máli og við einbeitum okkur að því."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir