Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 28. júlí 2015 14:17
Magnús Már Einarsson
Yngvi Borgþórs í KFS (Staðfest)
Yngvi og David James hressir.
Yngvi og David James hressir.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Reynsluboltinn Yngvi Magnús Borgþórsson hefur gengið til liðs við KFS í 3. deildinni.

Yngvi hefur verið í leikmannahópi ÍBV frá árinu 2007 en hann þekkir til hjá KFS eftir að hafa spilað með liðinu frá 2001 til 2006.

Yngvi spilaði einn leik með ÍBV í sumar en það var í 6-0 sigri á Létti í Borgunarbikarnum.

Yngvi er fertugur en hann getur spilað bæði í hjarta varnarinnar og á miðjunni.

Hann mun nú hjálpa KFS í baráttunni í 3. deildinni en liðið fær Álftanes í heimsókn til Eyja á morgun.

KFS er í augnablikinu með 13 stig í 6. sætinu í 3. deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner