„Við vorum í smá ströggli varnarlega í fyrri hálfleik en um leið og við náðum að skora mark þá breyttist leikurinn og ég er stoltur af frammistöðu liðsins í dag," sagði Bjarni Jóhannsson, þjálfari ÍBV, eftir 1-0 sigur á FH.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 0 FH
Með sigrinum í dag komst ÍBV í úrslit Borgunarbikarsins en þar mæta þeir Valsmönnum.
„Já, nú erum við komnir í úrslit og þetta er rússíbanareið að komast þangað og við erum alsælir með það," sagði Bjarni.
Gunnar Heiðar var á bekknum í dag en hann hefur ekkert komið við sögu í sumar.
„Hann lítur betur út en fyrir tíu dögum, hann er búinn að æfa vel og vonandi styttist í að hann geti hjálpað okkur í einhverjar mínútur," sagði Bjarni að lokum.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum að ofan.
Athugasemdir