ÍH hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir lokaátökin í 4. deildinni en Brynjar Benediktsson er kominn til félagsins.
Brynjar er uppalinn FH-ingur en hann er kant og sóknarmaður.
Hann ákvað í vor að leggja skóna á hilluna eftir að hafa leikið með Fram í fyrra.
Brynjar kom til Fram fyrir síðasta tímabil en hann hefur einnig leikið með Haukum, Leikni R. og ÍR á ferli sínum.

ÍH er í 1. sæti í D-riðli í 4. deildinni og í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni.
Risa signing hjá okjar mönnum í ÍH.#ForzaÍH pic.twitter.com/C6sKYwzhqC
— Brynjar Guðmundsson (@brynjargud) July 28, 2016
Athugasemdir