Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 28. júlí 2016 11:38
Magnús Már Einarsson
Fabregas fór inn í klefa hjá Liverpool til að biðjast afsökunar
Mynd: Getty Images
Cesc Fabregas, miðjumaður Chelsea, fór inn í klefa hjá Liverpool eftir æfingaleik liðanna í nótt.

Fabregas fór inn í klefa til að biðjast afsökunar á ljótri tæklingu á Ragnar Klavan.

Tæklinguna má sjá neðst í fréttinni en Fabregas fékk beint rautt spjald fyrir hana.

Antonio Conte, stjóri Chelsea, segir að ekki hafi verið um viljaverk að ræða.

„Ég hed að þreyta verði stundum til þess að leikmenn eru seinir í tæklingu. Ég veit að Fabregas er góður strákur og ekki leikmaður sem gerir svona," sagði Conte.

Hér að neðan má sjá tæklinguna.



Athugasemdir
banner
banner
banner