Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 28. júlí 2016 15:00
Magnús Már Einarsson
Gueye í læknisskoðun hjá Everton
Mynd: Getty Images
Idrissa Gueye, miðjumaður Aston Villa, er á leið í læknisskoðun hjá Everton.

Everton gerði 7,1 milljóna punda tilboð í Gueye á dögunum en hann var með klásúlu í samningi sínum um að mega fara fyrir þá upphæð.

Gueye kom til Aston Villa frá Lille síðastliðið sumar.

Hann var einn af fáu ljósu punktunum hjá Aston Villa þegar liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni í á síðasta tímabili.

Félög frá Frakklandi hafa sýnt Gueye áhuga í sumar en nú er hann á leið til Everton.
Athugasemdir
banner