Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 28. júlí 2016 15:16
Magnús Már Einarsson
Hildur Antonsdóttir í Breiðablik (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Hildur Antonsdóttir hefur gengið til liðs við Breiðablik en hún kemur til félagsins frá Val.

Hin tvítuga Hildur er miðjumaður.

Hún hætti í Val á dögunum líkt og systir hennar Heiða Dröfn en hún gekk í gær til liðs við HK/Víking.

Hildur hefur leikið með meistaraflokki Vals frá því árið 2011 en hún á einnig fjölda yngri landsleikja að baki.

Hún mun hjálpa Breiðabliki í titilbaráttunni í Pepsi-deildinni en Blikar eru einnig á leið í bikarúrslit gegn ÍBV í næsta mánuði.
Athugasemdir
banner
banner