Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 28. júlí 2016 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Leggur skóna á hilluna til að vera atvinnumaður í FIFA
Mynd: Getty Images
Hinn 27 ára gamli Wendell Lira hefur ákveðið að leggja takkaskóna á hilluna til að gerast atvinnumaður í FIFA.

Lira vann Puskas verðlaunin í janúar fyrir að skora flottasta mark ársins en hann hefur aldrei náð sér almennilega á strik í boltanum vegna tíðra meiðsla.

Eftir að hafa unnið Puskas verðlaunin spilaði Lira FIFA leik við heimsmeistarann í FIFA og vann, öllum til mikillar furðu, 5-1.

Í kjölfarið hefur Lira ákveðið að gerast atvinnumaður í FIFA og ætlar hann sér að búa til eigin YouTube rás þar sem hann safnar fylgjendum sem geta fylgst með honum spila tölvuleikinn.
Athugasemdir
banner
banner