Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   fim 28. júlí 2016 20:50
Elvar Geir Magnússon
Tryggvi Guðmunds í Eyjum: Felix með þvílíka innkomu
Mynd: Eyjafréttir
Tryggvi Guðmundsson, sérfræðingur Fótbolta.net um Pepsi-deildina, er í Vestmannaeyjum og horfði á ÍBV leggja FH í undanúrslitum bikarsins í kvöld.

Smelltu hér til að lesa textalýsingu frá leiknum

ÍBV neyddist til að gera skiptingu snemma leiks þegar Avni Pepa meiddist en þá kom inn ungur strákur sem lék í vinstri bakverði eftir tilfærslur innan liðsins. Tryggvi var verulega ánægður með Felix.

„Felix Örn Friðriksson átti þvílíka innkomu, þeir voru djarfir að setja hann inn á. Þetta er strákur fæddur 1999 sem ekki hefur spilað mikið með meistaraflokknum. Hann skilaði sínu mjög fagmannlega og þroskað. Hann var meira að segja óheppinn að skora ekki," segir Tryggvi.

Margir lykilmenn FH voru langt frá sínu besta.

„ÍBV pakkaði vel en það vantaði gæðin í slúttin, síðustu sendinguna og hlaupin hjá sóknarmönnum FH-liðsins," segir Tryggvi en framundan er rimma ÍBV gegn FH þann 13. ágúst í bikarúrslitum. Þar mætast Bjarni Jó og Óli Jó.

„Gamli skólinn er ekki svo slæmur skóli," segir Tryggvi í yfirferð sinni yfir leikinn sem hægt er að sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner