Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 28. ágúst 2014 20:54
Ívan Guðjón Baldursson
Cambiasso kominn til Leicester (Staðfest)
Esteban Cambiasso á yfir 50 landsleiki að baki.
Esteban Cambiasso á yfir 50 landsleiki að baki.
Mynd: Getty Images
Esteban Cambiasso er genginn til liðs við nýliða Leicester City í ensku úrvalsdeildinni.

Cambiasso á 315 leiki að baki fyrir Inter á tíu árum en fyrir það hafði hann leikið 41 leik fyrir Real Madrid og 37 fyrir River Plate.

Cambiasso leikur sem varnartengiliður og er nýorðinn 34 ára gamall, en hann kemur á eins árs samning.

Leicester byrjaði tímabilið á jafntefli gegn Everton en tapaði fyrir Chelsea í annari umferð.
Athugasemdir
banner
banner
banner