Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 28. ágúst 2014 17:00
Magnús Már Einarsson
Dagný og Celeste ekki með Selfossi í bikarúrslitum
Dagný Brynjarsdóttir.
Dagný Brynjarsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dagný Brynjarsdóttir og Celeste Boureille verða ekki með Selfyssingum í bikarúrslitaleiknum gegn Stjörnunni á laugardag.

Þær fóru báðar í nám í Bandaríkjunum fyrr í þessum mánuði og munu ekki fljúga heim í leikinn.

,,Ég reikna ekki með því, en maður veit aldrei," sagði Gunnar Rafn Borgþórsson þjálfari Selfyssinga sposkur í samtali við Fótbolta.net í dag aðspurður hvort að Dagný og Celeste verði með í leiknum.

Gunnar segir að Selfyssingar hafi reynt að fá leyfi frá skólunum úti en það hafi ekki gengið.

,,Þetta veltur á því að þær fá leyfi frá sínum skólum. Þetta eru flottir skólar með flotta þjálfara en þeir fylgja lögum og reglum eins og við."

Athugasemdir
banner
banner
banner