Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 28. ágúst 2014 21:32
Ívan Guðjón Baldursson
Di Maria: Ronaldo sagði mér að taka sjöuna
Hinn 26 ára Di Maria fær 200 þúsund pund í vikulaun.
Hinn 26 ára Di Maria fær 200 þúsund pund í vikulaun.
Mynd: Getty Images
Angel Di Maria segir að Cristiano Ronaldo hafi hvatt sig til að taka við treyju númer 7 hjá Manchester United.

Di Maria og Ronaldo hafa leikið saman hjá Real Madrid í nokkur ár og eru mestu mátar en nú er Argentínumaðurinn farinn til Rauðu djöflanna sem ætla að ná meistaradeildarsæti á tímabilinu.

,,Cristiano sagði mér hvað sjöan hjá Manchester United þýðir og vildi að ég tæki hana. Ég vildi vera númer sjö og það vildi félagið líka," sagði Di Maria.

,,Mér líkar vel við þetta félag og ég vildi koma hingað þrátt fyrir að það sé engin Meistaradeild á tímabilinu.

,,Manchester United hefur unnið marga titla og er mjög stórt félag. Ég kom hingað til að vinna fleiri titla."

Athugasemdir
banner
banner
banner