Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 28. ágúst 2014 23:22
Magnús Már Einarsson
Helgi Valur á leið til Danmerkur
Helgi Valur Daníelsson.
Helgi Valur Daníelsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmaðurinn Helgi Valur Daníelsson er á förum frá portúgalska félaginu Belenenses.

Belenenses greindi frá þessu í kvöld en Helgi er að semja við nýtt félag í Danmörku. Ekki hefur ennþá verið greint frá því um hvaða félag ræðir.

,,Við óskum @HelgiDanielsson alls hins besta í nýju ævintýri í Danmörku. Gífurlegur atvinnumaður sem á það besta skilið," sagði Belenenses á Twitter í kvöld.

Belenenses greindi einnig frá því að Helgi Valur hafi viljað skipta um félag af fjölskylduástæðum.

Helgi Valur er 33 ára gamall en hann kom til Belenenses frá AIK fyrir einu ári síðan.
Athugasemdir
banner
banner
banner