Juventus hefur staðfest að Andrea Pirlo verði frá í allt að 30 daga. Juventus á leik gegn Chievo í fyrstu umferð ítölsku A-deildarinnar um helgina.
Pirlo er 35 ára en hann tognaði í læri og gæti misst af fystu fimm leikjum Juve á tímabilinu.
Þegar hafði verið ljóst að Juventus yrði án Alvaro Morata, Arturo Vidal, Andrea Barzagli og Giorgio Chiellini.
Athugasemdir