Luis Suarez segir að hann hafi ekki íhugað að yfirgefa Liverpool þangað til tilboð frá Barcelona kom þar sem það hafði verið draumur hans lengi að spila með liðinu.
Úrúgvæinn fór til Barcelona fyrir 81 milljón evra fyrr í sumar þrátt fyrir að Real Madrid virtist líklegri áfangastaður um tíma.
En Suarez segir að hann hafi fylgst með Barcelona í langan tíma.
,,Þegar Barcelona hafði samband við mig þá hikaði ég ekki augnablik því þetta var draumurinn. Ég hafnaði öðrum tilboðum því draumur minn var að spila með Barcelona."
,,Eftir mörk ár í Evrópu, fyrst með Ajax og síðan Liverpool, þá er ferillinn minn búinn að þróast nóg og er ég kominn á toppinn og er að spila með besta liði í heimi," sagði Suarez.
Athugasemdir