Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 28. ágúst 2014 09:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Þjálfari Inter: Viljum gleyma fyrri leiknum gegn Stjörnunni
Walter Mazzarri.
Walter Mazzarri.
Mynd: Getty Images
Walter Mazzarri, þjálfari Inter segir að liðið sitt verði að leika fagmannlega í leik sínum í dag gegn Stjörnunni.

Inter er komið með aðra löppina í riðlakeppnina eftir 3-0 sigur á Laugardalsvelli.

Mazzarri segir hins vegar að leikmenn sínir verði að gleyma fyrri leiknum og einblína á síðari leikinn.

,,Ég vona að það verði mikil stemning sem hjálpar okkur að komast áfram," sagði Mazzarri.

,,Ég sagði leikmönnunum að gleyma úrstlitunum í fyrri leiknum því við verðum að einbeita okkur að þessum leik."

,,Þú getur ekki afrekað nýtt í fótbolta í dag án þess að allir leggja sig fram."
Athugasemdir
banner
banner
banner