Manchester United hefur samþykkt tilboð frá Aston Villa í miðjumanninn Tom Cleverley.
Orðrómur er um að tilboðið hljóði upp á átta eða níu milljónir punda en samningur Cleverley við Manchester United rennur út næsta sumar.
Orðrómur er um að tilboðið hljóði upp á átta eða níu milljónir punda en samningur Cleverley við Manchester United rennur út næsta sumar.
Cleverley er 25 ára gamall en hann er uppalinn hjá Manchester United.
Hann hefur ekki verið í miklum metum hjá stuðningsmönnum félagsins og nú er útlit fyrir að hann sé á förum.
Cleverley hefur áður leikið með Wigan, Leicester og Watford á láni.
Athugasemdir