Neil Warnock, nýráðinn stjóri Crystal Palace, ætlar fá Wilfried Zaha kantmann Manchester United til félagsins.
Warnock ræddi við Zaha í gærkvöldi og hann vonast til að ganga frá lánssamningi við leikmanninn í dag.
Warnock ræddi við Zaha í gærkvöldi og hann vonast til að ganga frá lánssamningi við leikmanninn í dag.
,,Ég ræddi við hann í gær. Ég eyddi hálftíma í segja honum af hverju ég vildi fá hann hingað og ég er vongóður um að við klárum þetta í dag," sagði Warnock.
Zaha kom til Manchester United á 15 milljónir punda síðastliðið sumar.
Hann hefur hins vegar alls ekki náð að festa sig í sessi hjá United og á síðasta tímabili var hann á láni hjá Cardiff í nokkra mánuði.
Athugasemdir