Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 28. ágúst 2015 21:15
Arnar Geir Halldórsson
Allofs: De Bruyne fer til Man City
Hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Wolfsburg
Hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Wolfsburg
Mynd: Getty Images
Klaus Allofs, yfirmaður leikmannamála hjá Wolfsburg, segir að Kevin De Bruyne verði orðinn leikmaður Man City á morgun í síðasta lagi.

De Bruyne var ekki í leikmannahópi Wolfsburg sem lagði Schalke af velli í Bundesligunni í kvöld.

„Við göngum frá öllum lausum endum í kvöld eða á morgun. De Bruyne fer til Man City", sagði Allofs í sjónvarpsviðtali í kvöld.

De Bruyne var einn besti leikmaður Bundesligunnar á síðustu leiktíð en hann kom til Wolfsburg frá Chelsea.

Þessi belgíski landsliðsmaður er langt því frá að vera ókeypis en eins og sagt var frá fyrr í dag mun hann fá um 200 þúsund pund í vikulaun hjá Man City.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner