Heimild: BBC
Celtic er við það að ganga frá lánssamningi við Man Utd vegna Tyler Blackett.
Blackett kom við sögu í 12 leikjum með Man Utd í fyrra en þessi 21 árs varnarmaður hefur ekki verið í leikmannahópi liðsins í fyrstu leikjum tímabilsins.
Hann hefur áður verið lánaður frá Man Utd þar sem hann lék á sínum tíma með Blackpool og Birmingham í Championship deildinni.
Celtic leitast eftir því að styrkja varnarlínu sína þar sem liðið óttast að missa sinn aðalvarnarmann, Virgil Van Dijk, sem hefur verið orðaður við Southampton.
Athugasemdir