Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 28. ágúst 2015 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: FI 
Draxler biður um sölu frá Schalke - Vill fara til Juventus
Mynd: Getty Images
Ítalskir fjölmiðlar halda því fram að Julian Draxler, sóknartengiliður Schalke, hafi beðið um að vera seldur frá félaginu.

Draxler hefur verið eftirsóttur af ýmsum stórliðum síðustu ár og virtist Arsene Wenger vera nálægt því að krækja í hann á sínum tíma.

Draxler verður 22 ára gamall í september og á, þrátt fyrir ungan aldur, 15 landsleiki að baki fyrir Þýskaland og 118 deildarleiki fyrir Schalke.

Sky Italia segir að miklar líkur séu á því að samkomulag náist enda sé ekki mikill munur á því sem Juventus er að bjóða í leikmanninn og því sem Schalke vill fá.

Talið er að Juventus þurfi að hækka tilboð sitt um þrjár milljónir evra til að allir aðilar séu sáttir.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner