Heimir Hallgrímsson, annar af landsliðsþjálfurum Íslands, segir að Ísland geti endurtekið leikinn og unnið Hollendinga aftur í undankeppni EM líkt og í fyrra.
„Þó að við séum fyrir ofan þá, þá gerum við okkur grein fyrir því að þeir hafa sennilega betri einstaklinga í liðinu. Við vinnum á liðs samvinnu og vinnusemi innan liðsins. Við treystum á að við getum átt jafn góðan leik og á Laugardalsvelli. Það sem hefur gerst einu sinni getur alltaf gerst aftur," sagði Heimir við Fótbolta.net í dag.

„Við förum auðvitað varkárir í þennan leik eins og við gerðum heima. Þrátt fyrir að við ættum okkar besta leik fyrr og síðar þá gætu Hollendingar unnið okkur því að þeir hafa menn sem geta klárað leiki upp á sitt einsdæmi."
Hollendingar eru í þriðja sæti riðilsins með tíu stig, fimm stigum á eftir Íslandi þegar fjórir leikir eru eftir.
„Þeir geta ekki vanmetið einn né neinn. Þeir verða líklega að vinna alla sína leiki til að ná öruggu sæti," sagði Heimir sem býst við stemningu á Amsterdam Arena. „Það verður örugglega uppselt og ansi margir í Fylkis búningnum," sagði Heimir léttur í bragði.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir