Willem II 0-1 NEC Nijmegen
0-1 Navarone Foor (´65)
0-1 Navarone Foor (´65)
Einn leikur fór fram í hollensku úrvalsdeildinni í kvöld þar sem Íslendingalið NEC Nijmegen sótti Willem II heim.
Hannes Þór Halldórsson stóð í marki NEC Nijmegen og hélt hreinu en Kristján Gauti Emilsson kom inn á sem varamaður á 61.mínútu.
Þetta var annar sigur NEC á tímabilinu í fjórum leikjum en liðið vann sér sæti í efstu deild á síðustu leiktíð.
Hannes Þór var fyrr í dag valinn í landsliðshóp Íslands sem mætir Hollandi og Kasakstan í undankeppni EM í næstu viku.
Athugasemdir