Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 28. ágúst 2015 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía um helgina - Risaslagur í beinni á Stöð 2 Sport
Mynd: Getty Images
Heil umferð er á dagskrá í ítölsku deildinni í dag þar sem fjórir leikir verða sýndir beint á Stöð 2 Sport og aukastöðvum.

Á laugardaginn verður viðureign AC Milan gegn Empoli sýnd beint á Stöð 2 Sport 3.

Á sunnudeginum verður risaslagur AS Roma og Juventus sýndur á Stöð 2 Sport.

Emil Hallfreðsson og félagar í Hellas Verona heimsækja Genoa í beinni á Stöð 2 Sport 3 á sama tíma og spennandi viðureign Napoli og Sampdoria verður sýnd beint.

Lazio heimsækir Chievo, Inter á útileik gegn nýliðum Carpi, Fiorentina á leik við Torino og Udinese mætir Palermo.

Laugardagur:
16:00 Bologna - Sassuolo
18.45 AC Milan - Empoli (Stöð 2 Sport 3)

Sunnudagur:
16:00 AS Roma - Juventus (Stöð 2 Sport)
18:45 Genoa - Verona (Stöð 2 Sport 3)
18:45 Napoli - Sampdoria (Stöð 2 Sport 4)
18:45 Atalanta - Frosinone
18:45 Carpi - Inter
18:45 Chievo - Lazio
18:45 Torino - Fiorentina
18:45 Udinese - Palermo
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner