Slóveninn Kevin Kampl hefur skrifað undir samning við Bayer Leverkusen til 2020.
„Það er mikil tilhlökkun að fara aftur í Leverkusen treyjuna, ég var hérna sem ungur leikmaður og steig mín fyrstu skref í fullorðinsbolta með varaliði félagsins," segir þessi 24 ára leikmaður.
„Það er mikil tilhlökkun að fara aftur í Leverkusen treyjuna, ég var hérna sem ungur leikmaður og steig mín fyrstu skref í fullorðinsbolta með varaliði félagsins," segir þessi 24 ára leikmaður.
„Að fá núna tækifæri til að spila fyrir liðið í Bundesligunni og Meistaradeildinni er frábær tilfinning."
Kampl er fljótur sóknarmiðjumaður sem kemur frá Borussia Dortmund. Hann gekk í raðir Dortmund í janúar á þessu ári frá Red Bull Salzburg.
Leverkusen hefur unnið báða deildarleiki sína til þessa á tímabilinu.
Athugasemdir