Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 28. ágúst 2015 16:38
Magnús Már Einarsson
Man Utd samþykkir tilboð frá WBA í Jonny Evans
Jonny Evans.
Jonny Evans.
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur samþykkt tilboð frá WBA í varnarmanninn Jonny Evans.

Hinn 27 ára gamli Evans er nú á leið í læknisskoðun hjá WBA.

Talið er að fyrrum liðsfélagi hans, Darren Fletcher, hafi sannfært hann um að koma til WBA.

Evans hefur verið úti í kuldanum hjá Manchester United en hann hefur ekkert spilað á þessu tímabili.

Koma Evans til WBA þýðir að félagið mun væntanlega selja Joleon Lescott til Aston Villa.
Athugasemdir
banner
banner
banner