FH varð í fyrrakvöld Íslandsmeistari í 2. flokki kvenna eftir að hafa unnið 1-0 sigur á Fylki í Kaplakrika en Erna Guðrún Magnúsdóttir skoraði eina mark leiksins á 83. mínútu.
Þetta var lokaleikur FH í mótinu sem endar með 28 stig úr 12 leikjum, 9 sigra, eitt jafntefli og tvö töp. Jóhannes Long tók myndirnar að neðan á leiknum.
Athugasemdir