„Við setjum pressuna á okkur. Við förum í alla leiki til að vinna. Við unnum í fyrra og eigum góðar minningar síðan þá. Auðvitað viljum við vinna í ár," segir Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari Stjörnunnar, fyrir úrslitaleik Borgunarbikars kvenna gegn Selfyssingum á morgun.
Stjarnan nær líklega ekki að verja Íslandsmeistaratitilinn en liðið getur varið bikarmeistaratitilinn á morgun.
„Eitt af markmiðum er að vinna þetta. Auðvitað erum við frekar svekkt með að vera ekki á toppnum í deildinni en þannig er fótboltinn. Þessi deild er meira spennandi og það eru fleiri erfiðir leikir í fyrra og í hitteðfyrra."
Stjarnan og Selfoss hafa unnið sitthvora innbyrðis viðureignina í Pepsi-deildinni í sumar.„Þetta voru báðir mjög skemmtilegir lekir þar sem var tekist vel á. Ég á ekki von á öðru en svoleiðis leik."
Stefnt er á áhorfendamet í bikarúrslitum kvenna en í fyrra var sett met þegar 2011 áhofendur mættu á völlinn.
„Ef menn vilja koma og sjá hörkuleik í kvennafótbolta þar sem allt er undir, þá er þetta rétti staðurinn," sagði Ólafur að lokum.
Athugasemdir