Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 28. ágúst 2015 11:30
Magnús Már Einarsson
Pochettino: Eins og þegar þú ert ástfanginn af konu
Mauricio Pochettino.
Mauricio Pochettino.
Mynd: EPA
Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, hefur líkt eltingarleik liðsins við Saido Berahino við ástina.

WBA hefur hafnað tveimur tilboðum frá Tottenham í Berahino og segir að framherjinn sé ekki til sölu.

Pochettino vill hins vegar ólmur krækja í Berahino.

„Þetta er eins og þegar þú ert ástfanginn af einhverri konu. Það eru margar konur í heiminum en þú vilt bara eina," sagði Pochettino.

„Stundum er það ómögulegt. Þetta snýst um ást. Í fótboltanum er þetta eins."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner