Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 28. ágúst 2015 20:21
Arnar Geir Halldórsson
Spánn: Soldado skoraði í dramatískum sigri Villarreal
Soldado líður vel í La Liga
Soldado líður vel í La Liga
Mynd: Getty Images
Villarreal 3 - 1 Espanyol
0-1 Felipe Caicedo ('5 )
1-1 Roberto Soldado ('67 )
2-1 Cedric Bakambu ('88)
3-1 Cedric Bakambu (´90)

Önnur umferð La Liga hófst í kvöld þegar Villarreal fékk Espanyol í heimsókn.

Felipe Caicedo kom gestunum yfir í upphafi leiks en eftir rúmlega klukkutíma leik jafnaði Roberto Soldado metin.

Annað mark Soldado í jafnmörgum leikjum en hann gekk nýverið í raðir Villarreal frá Tottenham þar sem hann náði aldrei að sýna sitt rétta andlit.

Annar nýr framherji, Cedric Bakambu, reyndist svo hetja heimamanna þegar hann skoraði tvö mörk á lokamínútum leiksins og tryggði Villarreal sinn fyrsta sigur.

Espanyol vann í fyrstu umferð á meðan Villarreal gerði jafntefli og hafa því bæði lið fjögur stig eftir tvo leiki.
Athugasemdir
banner
banner