Hammarby 0-0 Kalmar
Einn leikur fór fram í sænsku úrvalsdeildinni í dag þar sem Íslendingalið Hammarby fékk Kalmar í heimsókn.
Ögmundur Kristinsson stóð í marki Hammarby sem gerði markalaust jafntefli.
Birkir Már Sævarsson var ekki í liði Hammarby en bæði hann og Ögmundur eru í landsliðshópi Íslands sem var tilkynntur fyrr í dag.
Hammarby er í 10.sæti deildarinnar með 24 stig.
Athugasemdir