Burnley er komið langt með að ganga frá lánssamning við Patrick Bamford, framherja Chelsea.
Sean Dyche, stjóri Burnely er óður í að styrkja hópinn sinn og vonast hann til að fá fleiri leikmenn áður en félagsskiptaglugginn lokar.
Bamford er U-21 árs landsliðsmaður Englendinga en hann er uppalinn hjá Chelsea.
Hann var á láni hjá Crystal Palace og Norwich á síðustu leiktíð en hann átti erfitt með að komast í byrjunarliðin hjá báðum liðum.
Athugasemdir