Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 28. ágúst 2016 11:59
Elvar Geir Magnússon
Fellaini bjargaði konu meðan fagnaðarlætin voru
Fellaini kemur til bjargar!
Fellaini kemur til bjargar!
Mynd: Twitter
Marouane Fellaini fær mikið lof í enskum fjölmiðlum en hann kom konu til bjargar sem var að kremjast við auglýsingaskilti eftir að Manchester United skoraði sigurmarkið gegn Hull.

Markið kom í uppbótartíma og trylltist allt á vellinum við fögnuðinn. Marcus Rashford og félagar hlupu til áhorfenda og myndaðist mikið óðagot.

Á meðan liðsfélagar Fellaini misstu sig í gleðinni hafði Fellaini komið auga á konuna sem þjáðist upp við auglýsingaskilti eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.

Eftir sumar óvissu þar sem talið var að Fellaini væri á förum hefur hann komist aftur í náðina hjá stuðningsmönnum United. Hann hefur leikið vel í upphafi móts þar sem United hefur unnið fyrstu þrjá leiki sína.

Fellaini verður þó ekki með í næstu leikjum vegna meðsla í baki eins og fram kom í morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner