Jón Þór Hauksson, aðstoðarþjálfari ÍA, var himinlifandi eftir 2-0 sigur á Víkingi R. fyrr í kvöld.
Þetta er þriðji sigur ÍA í röð og er liðið í fjórða sæti Pepsi-deildarinnar þegar fimm umferðir eru eftir.
Þetta er þriðji sigur ÍA í röð og er liðið í fjórða sæti Pepsi-deildarinnar þegar fimm umferðir eru eftir.
„Þetta var virkilega góður leikur," sagði Jón Þór áður en hann var spurður út í hvort Skagamenn ætluðu sér ekki að reyna að ná Evrópusæti á lokasprettinum.
„Það hefur verið lykillinn hjá okkur að við höfum verið algjörlega fókuseraðir á næsta leik. Það markmið sem við erum að vinna eftir núna eru 29 stig, sem er jöfnun á árangrinum okkar frá því í fyrra og okkur vantar ennþá eitt stig í það."
Næsti leikur ÍA er gegn botnliði Þróttar R. og segir Jón Þór Skagamenn hafa harma að hefna þar eftir tap á heimavelli á fyrri hluta tímabilsins.
„Það verður mjög erfiður leikur og Þróttararnir náðu fínum úrslitum í Vestmannaeyjum núna áðan. Þróttararnir eru með gott lið þó að stigin hafi ekki komið fyrir þá."
Athugasemdir