Nacer Chadli, leikmaður Tottenham er á leiðinni til West Brom á láni en Sky greinir frá þessu.
Tottenham keypti Chadli á sínum tíma á 7 milljónir punda en hann kom frá hollenska liðinu Twente en hann var einn af sjö leikmönnum sem komu til Tottenham eftir að Gareth Bale var seldur.
Hinn 27 ára gamli Belgi hefur alls spilað 119 leiki fyrir Spurs og skoraði í þeim 25 mörk.
Hann er hins vegar ekki í plönum Mauricio Pochettino þessa stundina og hefur hann ekki ennþá komist í leikmannahópinn á þessari leiktíð.
Athugasemdir