banner
   sun 28. ágúst 2016 20:37
Ívan Guðjón Baldursson
West Brom að kaupa Chadli á metfé
Mynd: Getty Images
Sky segist hafa áreiðanlegar heimildir fyrir því að Tottenham sé búið að samþykkja tilboð frá West Bromwich Albion í belgíska sóknartengiliðinn Nacer Chadli.

Tottenham er búið að samþykkja 13 milljón punda tilboð í Chadli sem myndi gera hann að dýrustu kaupum í sögu West Brom.

Chadli er aftarlega í goggunarröðinni hjá Mauricio Pochettino, stjóra Tottenham, og West Brom sárvantar meiri gæði í sóknarleikinn.

Chadli fer í læknisskoðun á næstu dögum og hefur gert 25 mörk í 119 leikjum fyrir Tottenham.

„Við erum að gera okkar besta til að bæta liðið. Okkur vantar fimm leikmenn til að fullkomna hópinn," sagði Tony Pulis, stjóri West Brom, eftir markalaust jafntefli gegn nýliðum Middlesbrough fyrr í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner