Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 28. september 2016 17:04
Elvar Geir Magnússon
Guardiola var að kaupa sér nýjan bíl
Guardiola mættur á nýja bílnum.
Guardiola mættur á nýja bílnum.
Mynd: 101 Great goals
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, var á sínum tíma mótfallinn því að leikmenn sínir væru á dýrum sportbílum. Frægt er hjá Barcelona þegar það fór illa í Zlatan Ibrahimovic sem skömmu síðar var farinn til AC Milan.

„Mér fannst þetta fáránlegt. Það kom engum við hvaða bíl ég væri að keyra. Fyrir leik mætti ég á Ferrari Enzo til vinnu. Það hristi upp í þessu," sagði Zlatan í bók sinni.

Guardiola er hættur að skipta sér af bílaflota leikmannahóps síns. Sergio Aguero er vanur því að mæta á Lamborghini á æfingar.

Guardiola sjálfur er búinn að losa sig við Audi bifreið sína og er kominn á 30 milljón króna Bentley.
Athugasemdir
banner